mánudagur, desember 18, 2006
Hó! hó! hó!
Nei nei... jólaskapið er ekkert komið enn, eins og vanalega. Er samt búin að kaupa allar gjafir og meira að segja pakka inn öllu sem á að komast til skila hérna á höfuðborgarsvæðinu. Lærði það af harðri reynslu að vera ekkert að pakka niður gjöfum sem þarf svo að velkjast í ferðatösku í mislangan tíma.
En ég er nú svosum búin að stússast hellings í kringum jólin. Meira að segja eitt stykki jólaball... með tilheyrandi jólasveinum... má til með að segja frá einu...
Þegar ballið var búið, lumma ég mér fram hjá frænku minni til að gera upp við jólasveinana. Þeir þurfa víst að kaupa sitt í Bónus núna, alveg eins og við öll hin.
Ég banka á hurðina og spyr - Strákar! Eruð þið dísent? Já já er svarað þannig að ég fer inn. Situr þá ekki einn jólinn á brókinni, klappar á lærið á sér og strýkur yfir skeggið... koddu hérna gæskan... Bad Santa hér!
Þetta bjargaði alveg fyrir mér desember get ég sagt ykkur... ég hló svo mikið að það lá við að ég hefði sjálf þurft að skipta um brók..!

Read or Sendu inn athugasemd
<< Home