(function() { var a=window;function c(b){this.t={};this.tick=function(b,i,d){d=void 0!=d?d:(new Date).getTime();this.t[b]=[d,i]};this.tick("start",null,b)}var f=new c;a.jstiming={Timer:c,load:f};try{var g=null;a.chrome&&a.chrome.csi&&(g=Math.floor(a.chrome.csi().pageT));null==g&&a.gtbExternal&&(g=a.gtbExternal.pageT());null==g&&a.external&&(g=a.external.pageT);g&&(a.jstiming.pt=g)}catch(h){};a.tickAboveFold=function(b){var e=0;if(b.offsetParent){do e+=b.offsetTop;while(b=b.offsetParent)}b=e;750>=b&&a.jstiming.load.tick("aft")};var j=!1;function k(){j||(j=!0,a.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}a.addEventListener?a.addEventListener("scroll",k,!1):a.attachEvent("onscroll",k); })(); " /> Nöldur & ljótar hugsanir..!

föstudagur, nóvember 10, 2006

vitiðihvað!vitiðihvað!vitiðihvað!vitiðihvað!

Ég er á hreinum bíl..!

Og af hverju er það svona óskaplega merkilegt? Jú..! af því að ég þurfti ekki að þrífa hann sjálf. Einn kallinn í hinni vinnunni kvartaði undan verkefnaleysi og ég sagði í djóki að hann gæti skolað af bílnum mínum ef honum liði eitthvað illa.
Heyrðu! hann heimtaði af mér lykilinn meðan ég reyndi eins og ég gat (nú er ég að ljúga) að draga í land með þetta... og þeir ekki bara skoluðu af honum, heldur bónuðu hann og rygsuguðu!
Svei mér þá... held að ég athugi hvort að vinkona mín hún Betty Crocker verði samvinnuþýð við mig á næstunni. Þeir verskulda sko köku!

Í vikunni var ég svo á kvöldin á námskeiði, í tjónamatskerfi sem tryggingarfélögin nota.
jæja.... ég var stundum allsvaðalega efins um hvaða tilgang vera mín ætti þarna. Því stundum var ég ekki að skilja shit.
Þurfti stundum að hafa mig alla við að fara ekki að telja götin í loftinu... En þegar kom að þessu verklega þá gat ég sko alveg spjarað mig með ágætum... bara nokkrar spurningar... "strákar! hvað heitir þetta?" Get sko þetta eins og hvað annað.
Veit samt ekki hvað kennararnir hafa haldið þegar það mætir bara ein á pinnahælum innanum hina í stáltáarskóm. Ákvað svo að ég skildi bara spyrja seinna út í þessi erfiðu orð en ekki vera að trufla allt saman með því að spyrja til dæmis hvað er að réttarmæla þar sem að allir hinir vita alveg hvað það er, alveg eins og ég veit hvað sléttujárn er eða baðdúlla.
En jú.... þegar það var verið að tala um sjálfberandi yfirbyggingu, setti ég í brýrnar og fletti fram og til baka... kom annar kennarinn... kreisti á mér öxlina, bosti og sagði -bara alveg eins og bíllinn þinn.
Sem betur fer bætti hann ekki við gæskan eða vinan. Annars hefði ég orðið fúl en ekki fegin.

Posted by Ragnheiður @ 20:28

Read or Sendu inn athugasemd

iiiiii, heppin! Ef honum leiðist enn, má hann þrífa minn.

En hvað er sjálfberandi yfirbygging? Og hérna... baðdúlla... hvað er það?

Posted by Blogger Lilja @ 11 nóvember, 2006 11:15 #
 

Ég skal nefna þetta við þá... það er að segja ef minn er þá spikk og span....

Þetta er baðdúlla http://bodyshop.com/bodyshop/browse/product_detail.jsp;jsessionid=UJG0EZMH4YAIVULSIIXFAFOROJBC0UP4?productId=prod4110035&categoryId=cat30010.

Ef þú ert ekki á jeppa, þá er bíllinn þinn með sjálfberandi yfirbyggingu... (allaveganna þar til annað kemur í ljós)

Posted by Blogger Ragnheiður @ 11 nóvember, 2006 15:20 #
 

Þar sem þetta er orðið að spurningabanka þá bæti ég einni í sarpinn!

Hvað er hin vinnan þín?

Posted by Blogger Hafdís Ósk @ 13 nóvember, 2006 16:43 #
 

BL á annað verkstæði í Hafnarfirði.
Ég er þar eftir hádegi.

Posted by Blogger Ragnheiður @ 13 nóvember, 2006 19:31 #
 
<< Home

Gestabók


Glugga í Gestabókina
Rita í Gestabókina

Fólk

  • Perlan
  • Tóta
  • Elvis2
  • Annska
  • Hafdís Ósk
  • Icelily
  • Carola
  • Systkinin
  • Fréttir

  • BB
  • MBL
  • Vísir
  • The Onion
  • Ananova
  • Ýmislegt & fleira

  • Pilluáminning
  • Straigth Dope
  • Spámaður.is
  • Snopes.com
  • imdb
  • Forvitnin

  • að skoða bloggið


  • eXTReMe Tracker