(function() { var a=window;function c(b){this.t={};this.tick=function(b,i,d){d=void 0!=d?d:(new Date).getTime();this.t[b]=[d,i]};this.tick("start",null,b)}var f=new c;a.jstiming={Timer:c,load:f};try{var g=null;a.chrome&&a.chrome.csi&&(g=Math.floor(a.chrome.csi().pageT));null==g&&a.gtbExternal&&(g=a.gtbExternal.pageT());null==g&&a.external&&(g=a.external.pageT);g&&(a.jstiming.pt=g)}catch(h){};a.tickAboveFold=function(b){var e=0;if(b.offsetParent){do e+=b.offsetTop;while(b=b.offsetParent)}b=e;750>=b&&a.jstiming.load.tick("aft")};var j=!1;function k(){j||(j=!0,a.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}a.addEventListener?a.addEventListener("scroll",k,!1):a.attachEvent("onscroll",k); })(); " /> Nöldur & ljótar hugsanir..!

laugardagur, nóvember 04, 2006

pínlegt.is

Laugardag einn í síðasta mánuði fór ég í óvissuferð með vinnunni.
M.a. fórum við í Adrenalín garðinn á Nesjavöllum. Þar er maður látinn troða sér í ansi öflugt sigbelti með böndum yfir axlirnar, og það er líka ansi breiðara líka harna í klofinu heldur en þessi venjulegu.
Það sem við vorum látin gera þarna var að klífa ansi ljótan og helvíti háan rafmagnsstaur og klífa svona líka andskoti háan vegg. Þriðja dæmið er kallað rólan. Maður er sumsé hífður upp í skýin og svo á maður að tosa í spotta sem lætur mann gossa. Ég var svo hrædd fyrstu gusuna að ég gat ekki einu sinni öskrað! gat svo gargað hinar þrjátíu og eitthvað alveg eins og mig lysti.
Talandi um garg. Það var nú bara ein sem sem öskraði svo mikið að hún fór úr kjálkalið. Nú er ég ekki að ýkja.

En af hverju var ég að lýsa hversu breitt beltið væri í klofinu... jú það er ástæða fyrir því. Ég marðist soldið hressilega mjööög svo ofarlega innan læris.
Miðvikdaginn eftir þá þarf ég að mæta til kvensa.
Ég ligg sumsé á bekknum hjá honum, þið skiljið, með kollin á honum þið vitið hvar.... svo spyr hann
-Ertu sexjúalt aktíf?
--Nei. Heyrist ámátlega í mér.
-Nú nú... (með tón)
--Ég var í Adrenalíngarðinum á laugardaginn. Gat ég mjálmað upp úr mér.
-Jahá

Posted by Ragnheiður @ 11:00

Read or Sendu inn athugasemd

HAHAHA - SNILLD!
Þú ert auðvitað einskær snillingur!

Posted by Blogger Hafdís Ósk @ 05 nóvember, 2006 12:56 #
 

Ó ó ó ó ó!! Ég hló svo hressilega að ég held að miltað sé komið upp í kok :s

Posted by Anonymous Lilja @ 05 nóvember, 2006 19:48 #
 

þetta er mest fyndið, sé þig alveg fyrir mér varnarlaus á bekknum og doksinn að spyrja...hehe

Posted by Anonymous Agnes @ 08 nóvember, 2006 14:25 #
 
<< Home

Gestabók


Glugga í Gestabókina
Rita í Gestabókina

Fólk

  • Perlan
  • Tóta
  • Elvis2
  • Annska
  • Hafdís Ósk
  • Icelily
  • Carola
  • Systkinin
  • Fréttir

  • BB
  • MBL
  • Vísir
  • The Onion
  • Ananova
  • Ýmislegt & fleira

  • Pilluáminning
  • Straigth Dope
  • Spámaður.is
  • Snopes.com
  • imdb
  • Forvitnin

  • að skoða bloggið


  • eXTReMe Tracker