sunnudagur, nóvember 19, 2006
Mér er spurn...
Hvað í fjandanum á þessi skítakuldi hérna að þýða?
Músahjartað í mér fékk smá herping núna í vikunni. Þurfti að fara í bankann á fimmtudaginn og fór í Fjarðarkaup. Það er nú ekki langt þangað... en ég gat ekki einu sinni klárað blótsyrðin á ástkæra og "yl"hýra því að það var svo helv. ansk. djö. mikill skítakuldi úti. Þegar ég stekk út úr burrus heyri ég tónlist (gól) og finnst ég allt í einu vera út í Búdapest. Fyrir utan situr betlari og hún er fjólublá í framan af kulda og framleiðir hljóð á skrítið hljóðfæri.
Er þetta löglegt?
Má betla hérna?
Er þörf fyrir því að fólk sé að betla hérna?
Ég á ekki orð!
En þar sem ég var ótrúlegt en satt með meira í vasanum heldur en ló þá lét ég hana hafa það sem ég var með á mér. Ég er auðvitað búin að heyra að maður eigi ekki að gefa betlurum pening. En það er erlendis. Ekki á þröskuldinum hjá mér.
Það er annað sem er að hrjá mig núna.
Vinur minn hann Dr. Phil sem var alltaf með mér á morgnana meðan ég píndi ofan í mig morgunmatin og gerði mig sæta er farinn. Hættur og illa farinn.
Dr. Phil sem var aldrei með læti og bara voða rólegur og ljúfur. Akkúrat það sem ungfrú morgungeðprúð þurfti á að halda á morgnana.
Núna er komin snargeðveik bredda sem talar hátt og hratt, fleygir hlutum og er greinilega ekki búin að fara í greiningu. Sálartetrið mitt þolir bara ekki svona mikil læti á morgnana.
Ég skil bara ekkert í mér að viðurkenna þetta... en ég sakna Dr. Phil óendanlega mikið. Breddan með ofvirknina er ábyggilega fín seinnipartinn.
Jú..!
Það er líka eitt í viðbót. Ég veit bara ekki hvernig ég á að tækla þetta mál, en skítastuðullinn hjá mér er búinn að lækka allsvaðalega.
Dæmi: Ég sé að það er þessi fína smurolíurák í buxnaskálminni. Buxunum sem ég var í daginn áður og í staðin fyrir að roðna og blána og biðja alla vætti um að enginn hefði séð þetta, þá spáði ég bara ekki í þessu meir. Vanalega hefði ég nú skotist heim í matartímanum og skipt.
En kannski var ég líka bara svona skynsöm... hefði hvort eð er farið eftir hádegi á staðinn þar sem svona skeður.

Read or Sendu inn athugasemd
Já, það er sko VIÐBJÓÐS kalt...