miðvikudagur, október 25, 2006
Ég fékk þessa agalegu martröð núna á aðfararnótt þriðjudagsins. Eða það var þannig að ég vakna og mér finnst einhver liggja á gólfinu við hliðina á rúminu mínu. Ég gjörsamlega fraus og gat með miklum viljastyrk lokað augunum og teygt mig í slökkvarann á lampanum. Eftir smá fortölur í kollinum á mér þorði ég að kíkja og þá var þetta bara peysa af mér sem lá þarna. Voða saklaust.
Ég horfði illilega á Stephen King smásagnasafnið sem lá á náttborðinu mínu og kenndi honum um allt saman. Enginn herra King fyrir mig í góðan tíma eftir þetta.
Þegar ég vakna eftir brjálaða súra martröð í nótt þá fattaði ég að hryllingssögurnar áttu bara enga sök á þessu. Ég væri með hita.
Sit því hér heima með húfu á kollinum og bölva því að ég eigi ekki súpu í frystinum eða að það bjóði enginn upp á heimsendingu á svona. Helst það mikið kryddaða að maður svitni.
____________
Í gær fór ég nú að spá hvort að óbeit mín á sértrúarsöfnuðarliði sé nú ekki komin út í algjörar öfgar.
Það kom kona í gær að ná bílinn sinn og hún skildi eftir í þakklætisskyni eða eitthvað körfu fulla af ó svo girnilegum kanilsnúðum sem voru enn volgir með smá súkkulaðispæni efst sem var aðeins búið að bráðna.
Auðvitað er ráðist á körfuna um leið og hurðin lokast á eftir konunni... smjatt smjatt....
svo þegar ég er hálfnuð með minn ó svo girnilega heimabakaða snúð kíki ég ofan í körfuna, mér til mikillrar furðu liggur í botninum á körfunni fullt af "Jesú elskar þig" geisladiskum og "þú ferð til helvítis" bæklingum.
Hinn ó svo girnilegi snúður missti allann sjarma við þetta.
Lilli bró sagði mér að um daginn, hefði bankað upp á Vottar Jehóva. Ég bý í blokk með dyrasíma. Lilli bró var víst snöggur að losna við þá, en ég er ógeðslega fúl að einhver hérna skildi hafa hleypt þeim inn.
Væri eiginlega gaman að fá þá í heimsókn þegar ég er verulega pirruð og á túr og sjá til hvort að ég geti komið þeim til að grenja.
Ég hef verið að lesa soldið eftir rithöfund sem heitir Terry Pratchett. Hann er búinn að búa sér til sinn eiginn heim og þar ferðu eftir dauðann þar sem þú telur að þú farir "therefore it is most important to shot missionaries on sight." (Þess vegna er mjög mikivægt að skjóta alla trúboða á færi)
Veit ekki hvort að ég sé að fara rétt með þetta, en einhvern veginn svona var þetta.
Mér finnst þetta meika sens. Annars förum við öll til helvítis held ég miðað við að flest trúarbrögð segi að þú farir til helvítis ef þú trúir ekki rétt.
Annars ætti ég ekkert að vera að tjá mig núna. Með hitabulluna.
Gæti verið að ég eyði þessum pósti þegar hitinn er kominn í normið.

Read or Sendu inn athugasemd
Haha, ferlega scary peysa! Músarhjarta geturðu verið :þ
Vottar... ég er að spá í að hringja í sóttvarnarlækni og garga "Haraldur, það er faraldur!".
Ég fékk ekki einu sinni tyggjóplötu með mínum "þú ferð til helvítis"-bæklingum, fattarrru!
híhí... já en ég er ógeðslega töff og kúl á yfirborðinu sko...
Svo þurfti ég að googla Haraldi... var ekki alveg að fatta.
snúð?
Já, takk. Ég þigg Vottasnúð ;)